Leyndir fjármunir að baki baráttu kjötiðnaðarins gegn dýravelferð
Rannsókn leiðir í ljós hvernig almannafé úr bandarískum svínakjötsiðnaði hefur verið notað til að berjast gegn lögum um bætta dýravelferð.

Ný rannsókn Vox afhjúpar flókið kerfi fjármagnsflutninga innan bandaríska svínakjötsiðnaðarins. Greint er frá því hvernig milljónir dollara, sem koma úr lögbundnum gjöldum bænda, hafa runnið til öflugra hagsmunasamtaka sem berjast gegn dýravelferðarlögum. Með flóknum vörumerkjasamningum og fasteignaviðskiptum hafa samtökin komist hjá takmörkunum á notkun almannafjár í hagsmunagæslu. Þessi fjármuni er m.a. verið að nota í dómsmál til að fella úr gildi lög sem banna að svínum sé haldið í mjög þröngum stíum, þvert á vilja dýraverndunarsamtaka og margra neytenda.

