Sendi Farage, Le Pen og AfD skýr skilaboð úr ræðustól Alþingis
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gagnrýndi þá erlendu ráðamenn sem fögnuðu niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lét hörð orð falla í garð erlendra stjórnmálamanna í ræðu sinni á Alþingi í kvöld. Hún beindi spjótum sínum sérstaklega að þeim sem fögnuðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Utanríkisráðherra nefndi Nigel Farage, Marine Le Pen, Matteo Salvini og fulltrúa AfD í Þýskalandi og sagði þá ekki fá að skilgreina fyrir hvað íslenska þjóðin stæði. Hún lagði áherslu á að Ísland yrði áfram frjálslynt og umbótasinnað Evrópuríki þrátt fyrir niðurstöðuna og að utanríkisstefna og gildi þjóðarinnar stæðu óraskað.

