Selenskí hitti Þorgerði Katrínu í Keflavík
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti átti fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Keflavíkurflugvelli. Rætt var um öryggismál og áframhaldandi stuðning við Úkraínu.
Úkraínuforseti, Volodomír Selenskí, átti stuttan en mikilvægan fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, í Keflavík. Á fundinum voru einnig yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar og orkumálaráðherra landsins. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Selenskí kemur við á Íslandi til að ræða samvinnu og stuðning vestrænna þjóða við varnarbaráttu Úkraínu.
