Úkraínski herinn gerir sögulega drónaárás í Síberíu

Úkraínuher gerði í gær drónaárás á orkuvinnslustöð í norðurhluta Síberíu, um 3.200 kílómetra frá landamærunum. Er þetta sögð vera langdrægasta árás hersins til þessa.

RÚV10. september 2026 kl. 09:32
Úkraínski herinn gerir sögulega drónaárás í Síberíu
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Yamal-Nenets-hérað í Síberíu varð í gær fyrir fyrstu drónaárás úkraínska hersins. Dmitry Artyukhov, héraðsstjóri í Yamal-Nenets, greindi frá því að dróni hefði verið skotinn niður yfir hráolíu- og jarðgasvinnslustöð en eldur hefði kviknað þegar brak hans féll á stöðina. Árásin þykir söguleg þar sem vinnslustöðin er staðsett í um 3.200 kílómetra fjarlægð frá úkraínsku landamærunum, sem gerir hana að þeirri langdrægustu sem Úkraínumenn hafa framkvæmt síðan innrás Rússa hófst.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 10. september 2026 kl. 09:32
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir