Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina í kvöld
Mikil spenna er fyrir íþróttaviðburðum dagsins en Manchester United leikur í kvöld sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu eftir hlé. Sýnt verður frá leiknum á sportrásum Sýnar.

Íþróttaáhugafólk hefur úr mörgu að velja á sportrásum Sýnar í dag. Stærsti viðburður dagsins er vafalaust endurkoma enska stórliðsins Manchester United í Meistaradeild Evrópu, en liðið mætir til leiks í kvöld eftir að hafa verið fjarri deildinni um hríð.



