Milt veður framundan
Veðurspá gerir ráð fyrir mildu veðri næstu daga með hita allt að 16 stigum á Norður- og Austurlandi.
Búast má við frekar mildu veðri á landinu næstu daga. Vindur verður hægur víðast hvar en sums staðar getur verið kaldi, einkum vestanlands. Hiti getur náð allt að 16 stigum fyrir norðan og austan en búast má við vætu í flestum öðrum landshlutum. Þegar líður á nóttina og morgundaginn mun snúast í suðvestanátt með skúrum, en seinnipart á morgun snýst vindur til norðurs með rigningu og kólnandi veðri á Vestfjörðum og Norðurlandi.
