Bandaríkin skilgreina glæpagengi í Ekvador sem hryðjuverkasamtök
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa sett gengið Los Tiguerones á lista yfir hryðjuverkasamtök vegna umsvifa þeirra í eiturlyfjasmygli og ofbeldisverka.

Bandarísk stjórnvöld hafa formlega skilgreint ekvadorska glæpagengið Los Tiguerones sem hryðjuverkasamtök. Gengið komst í heimsfréttirnar árið 2024 þegar liðsmenn þess réðust inn í sjónvarpsstöð í miðri útsendingu. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti ákvörðunina í heimsókn sinni til Quito þar sem hann fundaði með forseta Ekvador. Bandaríkin stefna að því að auka fjármagn til að brjóta samtökin á bak aftur, en þau eru talin ógna stöðugleika í rómönsku Ameríku með umfangsmiklu eiturlyfjasmygli.



