Hafnaboltagoðsögnin Isao Harimoto er látinn
Isao Harimoto, einn þekktasti hafnaboltaleikmaður Japans og eftirlifandi kjarnorkuárásarinnar í Hírósíma, er látinn 86 ára að aldri.

Japanir syrgja nú einn sinn ástslælasta íþróttamann, Isao Harimoto, sem lést nýverið 86 ára að aldri. Harimoto átti glæsilegan feril í japanska hafnaboltanum og á enn metið yfir flest högg á ferlinum, eða 3.085 talsins. Hann var vígður í frægðarhöll japansks hafnabolta árið 1990. Harimoto var einnig þekktur fyrir að hafa lifað af kjarnorkuárásina á Hírósíma þegar hann var barn, en hann notaði sögu sína oft til að hvetja aðra og tala fyrir friði.



