Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka
Samkeppniseftirlitið hefur sent móðurfélagi Símans frummat þar sem fyrirtækið er sakað um að brjóta samkeppnislög með undirverðlagningu á fjarskiptapakka.

Samkeppniseftirlitið telur að Síminn hafi gerst brotlegur við samkeppnislög með því að bjóða áskriftarpakka á óeðlilega lágu verði. Í tilkynningu frá Símans móðurfélagi segir að um frummat sé að ræða og að fyrirtækið muni verja hagsmuni sína í málinu. Málið snýst um sölu á samsettri þjónustu sjónvarps, nets og síma sem boðin var á árunum fyrir 2022.

