Heiðruðu Harald konung og settu met
Jón Ingi Þorvaldsson og 60 manna hópur settu Norðurlandamet í mynsturstökki yfir Noregi og heiðruðu Harald Noregskonung í leiðinni.
Íslendingurinn Jón Ingi Þorvaldsson er hluti af 60 manna hópi sem setti nýverið Norðurlandamet í fallhlífarstökki. Metið var sett yfir Tønsberg í Noregi í lok ágúst þar sem hópnum tókst að mynda flókin mynstur í lausu falli úr 15 þúsund feta hæð. Stökkið var jafnframt tileinkað Haraldi Noregskonungi sem dvalist hefur á spítala undanfarið.

