Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir: „Þetta er ómanneskjulegt“
Ólafur Þór Ævarsson gagnrýnir þróun geðheilbrigðiskerfisins og segir starf geðlækna vera orðið erfiðara vegna kerfislægra vandamála sem bitna á sjúklingum.

Geðlæknirinn Ólafur Þór Ævarsson lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu geðheilbrigðismála á Íslandi. Hann segir kerfið stöðugt versna og lýsir ástandinu sem ómanneskjulegu. Ólafur bendir á að starf geðlækna sé krefjandi í sjálfu sér, en skortur á úrræðum og kerfislægar hindranir geri það verkum að erfitt sé að veita sjúklingum þá hjálp sem þeir þurfa.
