Ödegaard svaraði Carragher og Richards eftir sigur Arsenal
Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, svaraði Jamie Carragher og Micah Richards með léttu gríni eftir sigur liðsins gegn Napoli í Meistaradeildinni í gær.

Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, gat ekki á sér setið og svaraði Jamie Carragher og Micah Richards með léttu gríni eftir að Arsenal lagði Napoli í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Carragher og Richards hafa verið gagnrýnir á liðið, en góð frammistaða Arsenal gaf fyrirliðanum tækifæri á að stríða þeim félögum í beinni útsendingu eftir leik. Myndband af samskiptunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.


