Sjálfboðaliðar RNLI sæta netárásum eftir björgunarstörf
Sjóbjörgunarsamtökin RNLI endurskoða öryggismál sjálfboðaliða sinna eftir harkalegt aðkast á netinu í kjölfar björgunar flóttafólks á Ermarsundi.

Konunglega breska sjóbjörgunarstofnunin (RNLI) hefur hrundið af stað endurskoðun á öryggisráðstöfunum sínum eftir að sjálfboðaliðar samtakanna urðu fyrir barðinu á hatursorðræðu og hótunum á netinu. Tilefnið var björgunaraðgerð á sunnudag þar sem sjálfboðaliðar aðstoðuðu fólk sem freistaði þess að komast yfir Ermarsund. Samtökin leggja áherslu á að hlutverk þeira sé að bjarga mannslífum á hafi úti, óháð aðstæðum fólks, en aðkastið á samfélagsmiðlum hefur valdið áhyggjum af velferð þeira sem gefa vinnu sína í þágu öryggis.



