Pútín vísar sögusögnum um herkvaðningu á bug
Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir engin áform um nýja herkvaðningu en margir Rússar tortryggja yfirlýsinguna og óttast breytingar.

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur opinberlega vísað þeim sögusögnum á bug að ný bylgja herkvaðningar sé í vændum. Þrátt fyrir þetta sýna kannanir og viðbrögð á samfélagsmiðlum að stór hluti Rússa er vantrúaður á orð forsetans. Margir óttast að yfirvöld muni grípa til slíkra ráðstafana án mikils fyrirvara, líkt og gerst hefur áður í stríðinu úkraínu. Óvissan hefur orðið til þess að fjöldi manns er farinn að gera ráðstafanir ef boðun í herinn skyldi berast.



