Blikar og Mosfellingar mætast í spennandi bikarúrslitum
Á morgun mætast Afturelding og Breiðablik í úrslitaleik bikarkeppni karla í knattspyrnu. Blikar stefna á sinn annan titil en Mosfellingar geta skrifað söguna með sínum fyrsta stóra titli.
Bikarúrslitaleikur karla í fótbolta fer fram á morgun þegar Afturelding og Breiðablik mætast á Laugardalsvelli. Afturelding, sem leikur í Lengjudeildinni en hefur tryggt sér sæti í efstu deild, á möguleika á sínum fyrsta stóra titli í sögu félagsins. Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar, segir hópinn einbeittan og spenntan fyrir verkefninu. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari, árið 2009, og eru þrír leikmenn úr því liði enn í hópnum í dag. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, segir hungrið í hópnum mikið, sérstaklega þar sem gengi liðsins í deildinni hefur verið undir væntingum.


