Minni halli á rekstri Kópavogsbæjar en áætlað var
Rekstrarhalli Kópavogsbæjar nam 112 milljónum króna á fyrri hluta árs, sem er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Bæjarsjóður Kópavogs og tengd fyrirtæki voru rekin með 112 milljóna króna halla á fyrri helmingi ársins. Þetta er umtalsvert betri afkoma en áætlað var, þar sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 418 milljóna króna halla. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að hallareksturinn skýrist aðallega af meiri verðbólgu en spár gerðu ráð fyrir, en að tekjur hafi að hluta vegið þar á móti.

