Saga Golfklúbbsins Keilis skráð í tilefni 60 ára afmælis
Jóhann Guðni Reynisson mun skrifa sögu Keilis í Hafnarfirði, en klúbburinn fagnar 60 ára afmæli á næsta ári.

Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði hefur samið við Jóhann Guðna Reynisson um að rita sögu klúbbsins. Bókin á að koma út á næsta ári þegar 60 ár verða liðin frá stofnun þessa öfluga íþróttafélags. Samningurinn var undirritaður nýverið og er markmiðið að halda utan um ríka sögu starfsins og þróun golfíþróttarinnar í bænum í gegnum áratugina.


