Seðlabanki Slóvakíu krefst gjaldþrots líftryggingarfélagsins NOVIS
Seðlabanki Slóvakíu hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum á NOVIS, en þúsundir Íslendinga voru tryggðir hjá félaginu í gegnum Tryggingar og ráðgjöf.
Seðlabanki Slóvakíu (NBS) hefur lagt fram kröfu um gjaldþrotaskipti á hendur líftryggingarfélaginu NOVIS. Þetta kemur fram á vef bankans. Málefni NOVIS hafa verið mikið í deiglunni á Íslandi þar sem um fimm þúsund Íslendingar voru með samninga hjá félaginu þegar það var svipt starfsleyfi á síðasta ári. NBS svipti félagið leyfi í júní 2023 og síðan þá hefur því verið óheimilt að gera nýja samninga. Stór hluti íslenskra viðskiptavina var í gegnum Tryggingar og ráðgjöf ehf., sem nýlega fékk 35 milljóna króna sekt frá Fjármálaeftirlitinu vegna rangra upplýsinga til viðskiptavina.

