Guðmundur Ingi segist hafa verið hrakinn úr ráðherrastóli
Guðmundur Ingi Kristinsson ræðir brotthvarf sitt úr ríkisstjórn og úrsögn sína úr Flokki fólksins í Morgunvakt Rásar 1.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka, ræddi í morgun brotthvarf sitt úr embætti mennta- og barnamálaráðherra. Hann staðfesti í viðtali á Rás 1 að hann hefði verið „settur út“ úr ráðherraliðinu og að vinnubrögðin í kringum þá ákvörðun hefðu valdið honum miklum vonbrigðum. Þessi atburðarás átti ríkan þátt í því að hann ákvað síðar að segja sig úr Flokki fólksins. Guðmundur Ingi segist þó ekki óánægður með að hafa hætt sem ráðherra, heldur sé það aðferðafræðin sem hafi setið í honum.

