Varað við nýju frumvarpi á Ítalíu
Sérfræðingur hjá Sameinuðu þjóðunum og mótmælendur á Ítalíu vara við því að nýtt frumvarp gegn gyðingahatri gæti þaggað niður í gagnrýni á Ísrael.

Fjöldi fólks kom saman í Róm til að mótmæla nýju frumvarpi sem ítalska stjórnin hefur lagt fram til að berjast gegn gyðingahatri. Francesca Albanese, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna, er meðal þeirra sem vara við því að lögin séu of víðtæk og gætu verið notuð til að kæfa niður lögmæta gagnrýni á stefnu Ísraelsríkis. Mótmælendur óttast að tjáningarfrelsi á Ítalíu verði skert verulega ef frumvarpið verður óbreytt að lögum.



