Fékk að syngja tvísöng með Céline Dion
Hinn 20 ára gamli Sacha Dally fékk tækifæri til að syngja með stjörnunni Céline Dion fyrir utan hótel í París.

Sacha Dally, tvítugur aðdáandi Céline Dion, lifði draum sinn þegar hann hitti stjörnuna fyrir utan hótel hennar í París nýlega. Fundurinn endaði með því að þau sungu saman tvísöng sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum. Dally sagði í viðtali að raddstyrkur og vinalegheit stjörnunnar hafi komið sér á óvart, en myndband af fundinum hefur farið eins og eldur í sinu um netheimana og gert hinn unga söngvara heimsfrægan á svipstundu.


