Innanríkisráðherra Bretlands hvetur lögreglu til að beita öllum tiltækum ráðum gegn andstæðingum innflytjenda
Yvette Cooper, innanríkisráðherra Bretlands, hefur gefið lögreglu skýr fyrirmæli um að sýna enga vægð í mótmælum sem beint er gegn innflytjendum. Hún segir ofbeldi og truflun á allmannafriði óásættanlega.

Ráðherrann ræddi við forystumenn lögreglunnar eftir að mótmæli fóru úr böndunum í nokkrum breskum borgum. Cooper lagði áherslu á að lögreglan ætti fullan stuðning stjórnvalda við að handtaka og ákæra þá sem gerast sekir um skemmdarverk eða hatursárásir. Hún varaði við því að skipuleggjendur óeirða munu þurfa að mæta fullum þunga laganna.



