Reykkafarar sendir inn í brennandi íbúð í Hafnarfirði
Mikill viðbúnaður var vegna elds í Hafnarfirði í dag. Reykkafarar fóru inn í íbúðina sem reyndist vera mannlaus.

Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar tilkynning barst um eld í fjölbýlishúsi við Vallarbraut í Hafnarfirði nú síðdegis. Svartur reykur sást úr fjarska og voru reykkafarar sendir inn til að ganga úr skugga um að enginn væri inni í íbúðinni. Sem betur fer reyndist hún tóm. Eldurinn var slökktur fljótt en tjón á íbúðinni er talið töluvert vegna reyks og hita.

