Tvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki
Fjöldi fólks sem fær styrk til heyrnartækjakaupa hefur tvöfaldast á tíu árum. Sérfræðingur telur að greiðsluþátttaka ríkisins þurfi að aukast til að mæta hærri kostnaði.
Árið 2014 fengu tæplega 1.100 manns slíkan styrk en í fyrra var fjöldinn kominn upp í um 2.300 manns, og það stefnir í að fjöldinn verði jafnvel enn meiri á þessu ári. Ljósmóðir hafa útgjöld ríkisins vaxið úr um 100 milljónum í 270 milljónir króna. Kristján Sverrisson, ráðgjafi og fyrrverandi forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar, segir aukna vitund og markaðssetningu skýra hluta af fjölguninni. Hann bendir á að ómeðhöndluð heyrnarskerðing geti aukið líkur á elliglöpum og þunglyndi hjá eldra fólki. Styrkir duga oft skammt þar sem tæki geta kostað allt að 800 þúsund krónur parið.


