Megi skoða hvort stoppa eigi slakari nemendur af
Skólastjóri Rimaskóla segir stefnuleysi stjórnvalda í menntamálum síðustu ár hafa sitt að segja þegar kemur að slökum árangri íslenskra barna í PISA-könnunum.

Þóranna Jónsdóttir, skólastjóri Rimaskóla, telur nauðsynlegt að hafa skýra sýn til framtíðar í menntamálum fremur en að ráðherrar breyti áherslum á fjögurra ára fresti. Hún gagnrýnir stefnuleysi stjórnvalda og segir það hafa neikvæð áhrif á árangur í alþjóðlegum samanburði eins og PISA-könnunum. Skoða þurfi hvort grípa þurfi fyrr inn í hjá nemendum sem eiga í erfiðleikum.

