Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna
Staðfest hefur verið að Donald Trump hafi viðrað þá hugmynd við forsætisráðherra Íslands hvort landið ætti að ganga inn í Bandaríkin sem 51. ríkið.
Donald Trump Bandaríkjaforseti bryddaði upp á því í símtali við Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvember 2024 hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Heimildin hefur rætt við einstakling innan stjórnkerfisins sem staðfestir efni símtalsins, sem átti sér stað skömmu fyrir alþingiskosningar.

