Skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hvetja ríkisstjórnina til að falla frá fyrirhuguðum skattahækkunum í nýju fjárlagafrumvarpi.
Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum og að hækka ekki gjöld um meira en tvö og hálft prósent. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir skilaboðin í fjárlagafrumvarpinu vekja vonbrigði, en þar sé gert ráð fyrir verulegum hækkunum á ýmsum gjöldum sem muni bitna á launafólki.

