„Það sendir kolröng skilaboð“
Félag atvinnurekenda gagnrýnir nýtt fjárlagafrumvarp og segir það senda röng skilaboð með hækkunum á opinberum gjöldum.

Stjórn Félags atvinnurekenda segir að fjárlagafrumvarpið valdi vonbrigðum þó að þar sé að finna ljósa punkta. Hækkanir á gjöldum séu ekki í samræmi við það sem búist var við og gætu haft neikvæð áhrif á atvinnulífið.
