Kristrún um efnahagsmálin: „Hallalaus fjárlög eru okkar sleggja“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi efnahagsmál, kílómetragjald og „sleggjuna“ í Kastljósi, en hún segir hallalaus fjárlög vera sína helstu sleggju.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í Kastljósi í kvöld að stjórn landsins væri í öruggum höndum þrátt fyrir verðbólgu og háa vexti. Hún ræddi umhverfi ríkisfjármála og sagði að ný ríkisstjórn hefði þurft að taka á uppsöfnuðum vanda. Varðandi umtalaða „sleggju“ sem hún notaði í kosningabaráttunni sagði hún að ábyrg ríkisfjármál og hallalaus fjárlög væru í raun sú sleggja sem þyrfti til að ná niður vöxtum. Einnig var rætt um kílómetragjald á ökutæki, en hún lagði áherslu á að aðhald sé nauðsynlegt til að rétta af efnahaginn.


