Nýjar leiðir við orðaforðanám í skólum
Dósentar við Háskóla Íslands hafa lokið rannsókn á námsorðum og þróað aðferðir sem eiga að nýtast öllum nemendum við orðaforðanám.
Sigríður Ólafsdóttir og Auður Pálsdóttir, dósentar við Háskóla Íslands, hafa lokið rannsókn á notkun námsorða í íslensku skólakerfi. Rannsóknin, sem unnin var í samstarfi við Árnastofnun, beindist að tæplega 2.300 algengum námsorðum. Markmiðið er að þróa kennsluaðferðir sem nýtast öllum nemendum og styrkja orðaforða þeirra á markvissan hátt.


