Netanyahu stefnir dagblaði vegna rangra frétta
Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur boðað málsókn gegn dagblaði sem hélt því fram að honum hefði verið varnað við árásinni 7. október.

Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur ákveðið að fara í mál við dagblað vegna fullyrðinga um að stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi varað hann við árásinni þann 7. október. Blaðið heldur fast við frásögn sína og vísar í nýút komna bók sem heimild. Forsætisráðherrann fullyrðir hins vegar að þessar upplýsingar séu algjörlega tilhæfulausar og skaðlegar.


