Sprenging í göngum Hezbollah olli jarðskjálfta
Ísraelsher eyðilagði umfangsmikið gangakerfi Hezbollah í suðurhluta Líbanons með þeimleiðingum að jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist á svæðinu.

Ísraelsher greindi frá því í dag að hann hefði eyðilagt lykilinnviði Hezbollah í suðurhluta Líbanons, þar á meðal flókið gangakerfi undir Ali al-Taher fjallgarðinum. Sprengingin sem fylgdi í kjölfarið var svo mikil að hún mældist sem jarðskjálfti af stærðinni 4,1. Ísraelsmenn segjast nú hafa náð stjórn á þessu mikilvæga svæði en óttast er að spennan á landamærunum fari vaxandi.


