Þúsundir prjóna til að styrkja Kvennaathvarfið
Þúsundir Íslendinga hafa prjónað svokallaðar Skjól-peysur í sumar en andvirði uppskriftarinnar rennur til styrktar Kvennaathvarfinu.
Prjónaáhugi landsmanna hefur blómstrað í sumar og hafa þúsundir prjónað Skjól-peysuna. Mynstrið hefur orðið áberandi í almannarými en markmiðið með sölu uppskriftarinnar er að styrkja starfsemi Kvennaathvarfsins. Margir eru að takast á við prjónaskap í fyrsta sinn á meðan aðrir hafa prjónað margar peysur í þeim göfuga tilgangi að rjúfa mynstrið og styðja við þolendur ofbeldis.


