Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon
Árásir Ísraelshers á neðanjarðarbyrgi Hezbollah í Líbanon voru svo kröftugar að þær mældust á jarðskjálftamælum sem skjálfti af stærðinni 4,1. Ísraelski herinn segist hafa eyðilagt mannvirkið og birti myndband af sprengingunni.
Árásir Ísraelshers á neðanjarðarbyrgi Hezbollah í Líbanon voru svo kröftugar að þær mældust á jarðskjálftamælum sem skjálfti af stærðinni 4,1. Ísraelski herinn segist hafa eyðilagt mannvirkið og birti myndband af sprengingunni. Bandaríska jarðfræðistofnunin staðfesti skjálftann en ljóst er að um manngert fyrirbæri var að ræða vegna árásanna.


