Fimm drepnir í árás Rússa á verslunarmiðstöð
Að minnsta kosti fimm almennir borgarar létu lífið þegar Rússar gerðu eldflaugaárás á verslunarmiðstöð í Úkraínu. Mannfall hefur aukist verulega í stríðinu undanfarið.

Tala þeirra sem látast í Úkraínu af völdum stríðsins hefur aldrei verið hærri síðan innrásin hófst að undanskildum fyrstu mánuðum hennar. Rússar herða nú árásir sínar á borgaraleg skotmörk víðs vegar um landið.


