Reynir að kveða niður samsæriskenningar um mál Lindsay Clancy
Réttarhöld standa yfir í Bandaríkjunum yfir Lindsay Clancy, sem sökuð er um að hafa myrt börnin sín þrjú. Verjendur reyna nú að hrekja samsæriskenningar sem hafa beinst gegn eiginmanni hennar.

Réttarhöld yfir konu að nafni Lindsay Clancy hafa sett allt á hliðina í Bandaríkjunum. Hún er sökuð um að hafa myrt börn sín í janúar 2023. Fjölskyldan reynir nú að verja föður barnanna gegn óvægnum fullyrðingum á netinu.


