Stytta af Charlie Kirk veldur ólátum á Times Square
Afhjúpun styttu til heiðurs íhaldsmanninum Charlie Kirk á Times Square í í New York leiddi til átaka milli stuðningsmanna og andstæðinga.

Mikill hiti var í mönnum á Times Square í New York þegar stytta af hinum umdeilda íhaldssama baráttumanni Charlie Kirk var afhjúpuð. Atburðurinn dró að sér bæði dygga stuðningsmenn og harða andstæðinga, sem leiddu saman hesta sína með þeim afleiðingum að ólæti brutust út. Lögreglan þurfti að grípa í taumana til að halda uppi lögum og reglu á þessum fjölfarna ferðamannastað.


