Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut
Fósturgreiningardeild Landspítalans flytur aftur á Hringbraut í næstu viku eftir fimm ára fjarveru vegna framkvæmda.
Fósturgreiningardeild Landspítala mun flytja starfsemi sína aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut eftir helgi. Deildin hefur verið til húsa í Skógarhlíð sl. fimm ár á meðan viðamiklar endurbætur stóðu yfir á Hringbraut. Með flutningnum sameinast öll þjónusta kvennadeildarinnar á nýjum stað, sem felur í sér meðgönguvernd, fósturgreiningu og bráðaþjónustu undir sama þaki, sem spítalinn segir að muni bæta samstarf og þjónustu við skjólstæðinga.


