Pútín og Xi mættir á leiðtogafund BRICS á Indlandi
Leiðtogar stærstu þróunarlandanna funda nú á Indlandi þar sem áhersla er lögð á stríðsátök og efnahagsmál á alþjóðavísu.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Xi Jinping Kínaforseti eru mættir til Nýju-Delí í Indlandi til að sitja leiðtogafund BRICS-ríkjanna. Búist er við að stríðin í Úkraínu og Miðausturlöndum verði í brennidepli, auk efnahagslegra áskorana sem aðildarríkin standa frammi fyrir. Pútín mun einnig eiga fundi með Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, og Masoud Pezeshkian, forseta Írans, til að ræða nánara samstarf ríkjanna á alþjóðavettvangi.


