Drengur fékk „húðbruna“ af fartölvunotkun
Læknar vara við óhóflegri notkun fartölva í kjöltu eftir að drengur fékk óvenju húðeinkenni vegna stöðugs hita frá tækinu.

Ungur drengur í Bretlandi fékk sjaldgæfan húðsjúkdóm, sem kallast „ristuð húð“ (e. toasted skin syndrome), eftir að hafa notað fartölvu daglega í langan tíma. Drengurinn leitaði til læknis með brúnleita og netlaga bletti á kviðnum, sem reyndust vera afleiðing af stöðugum hita frá tölvunni. Læknar benda á að þótt tölvur hitni yfirleitt ekki nógu mikið til að valda brunasárum strax, geti langvarandi útsetning fyrir hitanum skaðað húðina.


