Vilja aðgerðaáætlun um að útrýma minki
Þingmenn úr þremur flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að gerð verði aðgerðaáætlun til að útrýma minki úr íslenskri náttúru.
Sex þingmenn úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vilja að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun sem miði að því að útrýma minki úr íslenskri náttúru. Í þingsályktunartillögu sem lögð var fram á Alþingi kemur fram að minkaveiðar séu kostnaðarsamar fyrir ríki og sveitarfélög og að markvissar aðgerðir gætu skilað verulegum fjárhagslegum ávinningi til langs tíma. Karl Gauti Hjaltason er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
