Upplýsingaóreiða einkenndi kosningabaráttuna um ESB
Forsvarsfólk hreyfinga telur að upplýsingaóreiða hafi einkennt baráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður.
Niðurstaða forsvarsfólks helstu hreyfinga sem börðust um atkvæði í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður er að upplýsingaóreiða og ósannindi hafi fengið að standa óáreitt. Baráttan kostaði samtals á annað hundrað milljónir króna og er þetta talin fyrsta kosningabaráttan á Íslandi þar sem skipulögð upplýsingaóreiða spilaði jafn stórt hlutverk.
