Deilt um afdrif ESB-umsóknar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki spurningum stjórnarandstöðu um stöðu ESB-umsóknar Íslands frá 2009 á Alþingi í gærkvöldi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vék sér hjá því að svara ítrekuðum spurningum stjórnarandstöðuþingmanna á Alþingi í gærkvöldi um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu (ESB) frá 2009. Málið vakti töluverða athygli en mikil óvissa ríkir um næstu skref í Evrópumálum.
