Lýsir alvarlegri fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar
Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar sýnir alvarlega rekstrarstöðu sem kallar á víðtækt hagræðingarátak til að bæta þjónustu við íbúa.

Staðan sem birtist í uppgjöri Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu sex mánuði ársins lýsir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í rekstri borgarinnar. Þetta skýrir ástæðu þess að borgin er nú í miklu hagræðingarátaki. Þörf er á að taka til í rekstrinum, draga úr sóun og auka skilvirkni, en lokamarkmiðið er alltaf að endingu að bæta þjónustuna við íbúa borgarinnar.


