Loftárás Ísraela olli jarðskjálftalíkum titringi í Líbanon
Ísraelseyher eyðilagði göng Hezbolla í Suður-Líbanon sem olli 4,1 stiga titringi á svæðinu, að sögn jarðvísindastofnana.

Ísraelsher greindi frá því að hafa eyðilagt umfangsmikið neðanjarðarbyrgi og göng á vegum Hezbollah í Suður-Líbanon. Eyðileggingin var svo mikil að hún olli titringi sem mældist 4,1 stig á Richter, sem margir íbúar á svæðinu töldu vera jarðskjálfta. Spenna á landamærunum fer stöðugt vaxandi og eru báðir aðilar sagðir búa sig undir frekari átök á næstu dögum.



