Ísraelsher segist hafa eyðilagt stóra neðanjarðarstöð Hizbollah
Öflug sprenging varð þegar Ísraelsher eyðilagði neðanjarðarstöð Hizbollah í Líbanon, en sprengingin mældist sem jarðskjálfti af stærð 4,1.

Ísraelsher greindi frá því að hann hefði eyðilagt umfangsmikla neðanjarðarstöð vígasamtakanna Hizbollah. Samkvæmt jarðvísinda stofnun Bandaríkjanna (USGS) var sprengingin svo öflug að hún mældist sem jarðskjálfti að stærð 4,1, sem undirstrikar umfang aðgerðarinnar.



