FIFA neitar fullyrðingu Marokkó um úrslitaleik HM 2030
Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur vísað á bug fullyrðingum Marokkó þess efnis að úrslitaleikur heimsmeistaramótsins 2030 verði haldinn þar í landi.

Marokkó mun halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2030 ásamt Spáni og Portúgal. Þrátt fyrir fullyrðingar ráðamanna í Marokkó um að úrslitaleikurinn fari fram í Norður-Afríku hefur FIFA nú neitað því og segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um leikstað úrslitaleiksins.


