Maður tapaði máli um endurgreiðslu á 50 milljónum króna sem hann eyddi í gjafir handa fyrrverandi kærustu
Hæstiréttur Singapúr úrskurðaði konu í vil í máli manns sem vildi fá endurgreiddar dýrar gjafir sem hann keypti handa henni.

Hæstiréttur í Singapúr hefur hafnað kröfu manns sem freistaði þess að fá endurgreiddar rúmlega 369.000 Bandaríkjadali, eða um 50 milljónir króna, sem hann eyddi í rándýrar gjafir handa fyrrverandi kærustu sinni. Dómarinn í málinu komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði gefið konunni gjafirnar af fúsum og frjálsum vilja, jafnvel áður en samband þeirra hófst formlega, og því ætti hann engan rétt á endurgreiðslu.



