Taílenska lögreglan handtekur fyrrum ábóta vegna gruns um 400 milljóna króna fjárdrátt
Taílensk yfirvöld hafa handtekið æðsta munk klausturs vegna gruns um að hafa dregið sér milljónir dollara. Skammarlegt atvikið felur einnig í sér kynlífshneyksli sem hefur hrist upp í trúfélaginu.

Lögreglan í Taílandi hefur handtekið háttsettan búddamunk sem grunaður er um að hafa dregið sér 2,8 milljónir dollara, sem samsvarar tæpum 400 milljónum króna, sem ætlaðir voru klaustri hans. Munkurinn var handtekinn ásamt konu sem hann sást eiga í kynferðislegu sambandi við á myndbandi, en það þykir mikil smán innan raða klerkastéttarinnar þar í landi. Þetta mál er það nýjasta í röð hneykslismála sem hafa skekið búddatrú í Taílandi og vakið kröfur um aukið eftirlit með fjármálum mustera.



