Sakar yfirvöld í New York um að leyna alvarleika mengunar eftir 11. september
Dauðsföll vegna mengunar við rústir World Trade Center eru nú talin vera þrefalt fleiri en þeirra sem létust í sjálfum hryðjuverkaárásunum 11. september 2001.
Zohran Mamdani, borgarstjóri í New York, lýsti því yfir nýverið að gögn sýni að eitrað asbest hafi verið nánast alls staðar í loftinu við World Trade Center eftir harmleikinn. Nærri 25 árum síðar hafa fleiri látist úr sjúkdómum sem raktir eru til þessarar mengunar en í árásunum sjálfum. Borgarstjórinn gagnrýndi forvera sína harðlega og sagði þá hafa logið að íbúum um loftgæðin, sem þá hafi verið sögð heilsusamleg þótt raunin væri önnur.



